| Fréttir og tilkynningar |
| Bjarnarleik frestað Árborgarmenn hafa gert Birninum Bjarnagreiða með því að samþykkja frestun á leik liðanna sem fram átti að fara í kvöld, föstudaginn 4. júní. Adólf fær UEFA B gráðu Knattspyrnufélag Árborgar óskar þjálfaranum til hamingju með áfangann enda frábært fyrir félagið að vera með á sínum snærum þjálfara með UEFA B þjálfara gráðu. |
| Næstu leikir |
Nýjustu upphitanir og leikskýrslur
LeikskýrslaKFS - Árborg 0-2 Selfossvöllur, 28.ágúst 2010 Það var mikið um að vera í Vestmannaeyjum um helgina og Árborgarar máttu prísa sig sæla að komast á eyjuna yfir höfuð, þar sem allar ferðir á eyjuna voru upppantaðar. Formaðurinn var glaður þegar allir voru komnir um borð í dallinn - leikmenn, liðstjórn og velunnarar. Báturinn lenti í Vestmannaeyjarhöfn rétt rúmlega klst fyrir leik og stefnan tekinn beint á Hásteinsvöll þar sem leikur Árborgar og KFS fór fram. Leikurinn var fyrri leikur liðanna í 8 liða úrslitum úrslitakeppninnar. Siglingin hafði merkjanleg áhrif á leikmenn sem kom bersýnilega í ljós í sendingaræfingunni í upphituninni. Það kunna greinilega ekki allir að stíga í ölduna jafnvel og Guðjón Bjarni enda liðið uppfullt af landkröbbum. Eina breyting á leikmannahópinum var að Árni Sigfús kom inn í hóp enda búinn að jafna sig á hestaflensu og Eiríkur Raphael var 17.maður. |
| KFS 0 - ÁRBORG 2 Glæstur sigur Hesta Jói er stoltur í dag. |
LeikskýrslaÁrborg - Sindri 3-1 Selfossvöllur, 21.ágúst 2010 Það var ekkert í húfi nema heiðurinn fyrir Árborg þegar liðið tók á móti Sindra í lokaumferð 3. deildarinnar á gervigrasinu á Selfossi. Fyrir leikinn var Árborg öruggt með toppsætið í riðlinum en Sindramenn þurftu á sigri að halda til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. |
Sjá fleiri upphitanir og leikskýrslur


