Leikskýrsla KFS - Árborg 0-2 Selfossvöllur, 28.ágúst 2010 Það var mikið um að vera í Vestmannaeyjum um helgina og Árborgarar máttu prísa sig sæla að komast á eyjuna yfir höfuð, þar sem allar ferðir á eyjuna voru upppantaðar. Formaðurinn var glaður þegar allir voru komnir um borð í dallinn - leikmenn, liðstjórn og velunnarar. Báturinn lenti í Vestmannaeyjarhöfn rétt rúmlega klst fyrir leik og stefnan tekinn beint á Hásteinsvöll þar sem leikur Árborgar og KFS fór fram. Leikurinn var fyrri leikur liðanna í 8 liða úrslitum úrslitakeppninnar. Siglingin hafði merkjanleg áhrif á leikmenn sem kom bersýnilega í ljós í sendingaræfingunni í upphituninni. Það kunna greinilega ekki allir að stíga í ölduna jafnvel og Guðjón Bjarni enda liðið uppfullt af landkröbbum. Eina breyting á leikmannahópinum var að Árni Sigfús kom inn í hóp enda búinn að jafna sig á hestaflensu og Eiríkur Raphael var 17.maður.
Lesa meira... |
KFS 0 - ÁRBORG 2 Glæstur sigur Hesta Jói er stoltur í dag. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Sindri 3-1 Selfossvöllur, 21.ágúst 2010 Það var ekkert í húfi nema heiðurinn fyrir Árborg þegar liðið tók á móti Sindra í lokaumferð 3. deildarinnar á gervigrasinu á Selfossi. Fyrir leikinn var Árborg öruggt með toppsætið í riðlinum en Sindramenn þurftu á sigri að halda til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.
Lesa meira... |
Upphitun Fyrir leik Knattspyrnufélagsins Árborgar og Knattspyrnufélagsins Framherjar-Smástund Hásteinsvöllur, 28.ágúst 2010 kl. 15:30 ![]() Upphitun ritar vatnsberi nr. 1 Torfi Ragnar Sigurðsson.
Lesa meira... |
Leikskýrsla KFG - Árborg 0-2 Stjörnuvöllur, 13.ágúst 2010 ![]() Árborg vann öflugan útisigur á KFG í uppgjöri efstu liðanna þegar liðin mættust á Stjörnuvelli föstudaginn 13.ágúst. Fyrir leikinn var Árborg búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni og gat aðeins misst efsta sætið með því að tapa stórt í síðustu tveimur leikjunum. Nokkrar breytingar voru frá KFR leiknum. Steini leysti Einar af í markinu, Guðbergur kom í vinstri bakvörðinn fyrir Guðjón Bjarna í sínum fyrsta deildarleik með Árborg frá því 2005. Eiki kom á miðsvæðið fyrir Jón Auðunn (sem tók út leikbann), en þetta var fyrsti leikur Eika byrjunarliði. Að lokum kom Samuel á vinstri kant inn fyrir Guðmund Garðar sem var meiddur.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - KFR 4-0 Selfossvöllur, 5.ágúst 2010 Það var mikið undir þegar KFR heimsóttu Árborgara á fimmtudag eftir verslunarmannahelgi, því með sigri gátu Árborgarar tryggt sér sæti í úrslitakeppni 3.deildar karla í fyrsta skipti í 10 ára sögu félagsins. Adólf þjálfari gerði tvær breytingar á liðinu frá Markaregns leiknum, Ólafur Tryggvi var farinn til Þýskalands og Guðmundur Garðar byrjaði á bekknum vegna smávægilegra meiðsla. Njörður tók stöðu Óla í miðverðinum og Guðmundur Eggerts byrjaði á vinstri kantinum. Þrátt fyrir mikilvægi leiksins var upplegg þjálfarans svipað og í fyrri leikjum liðsins - að spila agaðan varnarleik en vera hreyfanlegir í sóknarleiknum og reyna að halda boltanum innan liðsins.
Lesa meira... |
KFS í 8 liða úrslitum KFS verður fyrir barðinu á Hesta Jóa. KFS í 8 liða úrslitum og svo er allt óljóst en væntanlega KB eða Tindastóll og svo Dalvík í úrslitaleiknum. Lesa meira... |
Árborg - Sindri Árborg - Sindri klukkan 14:00 Síðasti leikur riðilsins er í dag.Lesa meira... |
Leikskýrsla Markaregn-Árborg 0-4 Ásvellir 27.júlí kl 20:00 Á þriðjudegi fyrir verslunarmannahelgi heimsóttu Árborgarar lið Markaregns á gervigrasinu á Ásvöllum í Hafnarfirði. Í fyrri leik liðanna sigraði Árborg örugglega með þremur mörkum gegn engu (leikskýrslu má sjá hér) en í þeim leik komu mörkin öll í fyrri hálfleik. Leikmenn Árborgar byrjuðu leikinn með látum og ætluðu sér ekkert annað en sigur eftir tapið í leiknum gegn Birninum.
Lesa meira... |
Upphitun Markaregn - Árborg Ásvellir 27. júlí kl. 20:00 Árborgin okkar spilar á morgun við Markaregn. Samkvæmt heimildum Hesta-Jóa er þetta lið tengt Haukum og spilar sína heimaleiki á Ásvöllum. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Björninn 0-1 Selfossvöllur, 21.júlí 2010 ![]() Það var rjómablíða og sólskin þegar flautað var til leiks á grjóthörðu æfingasvæði Selfossvallar í viðureign Árborgar við Skautafélagið Björninn. Þjálfarinn hafði innprentað í menn að þetta væri hættulegasti leikur sumarsins enda Bjarnarliðið líklega best spilandi lið riðilsins.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Álftanes - Árborg 1-2 Bessastaðavöllur, 15. júlí 2010 Sláttur var í fullum gangi á engjum Bessastaða þegar Árborgara bar þar að garði. Ólafur og Dorrit stóðu við baggabindivélina og veifuðu til þegna sinna úr borg Árinnar og blés það mönnum óneitanlega þjóðernisást í brjóst.Lesa meira... |
Leikskýrsla Hvíti Riddarinn - Árborg 0-6 Tungubakkavöllur, 8.júlí 2010 Það var rjómablíða á Tungubakkavelli í Mosfellssveit þegar Árborg mætti Hvíta riddaranum í fyrsta leik liðsins í seinni umferð A-riðils. Fyrir leikinn sat liðið á toppi riðilsins með 19 stig á meðan Hvíti riddarinn var í næst neðsta sæti með 3 stig. Árborgar höfðu góð tök á leiknum í 90 mínútur og unnu öruggan 6-0 sigur og héldu því toppsæti sínu í A-riðli 3. deildar karla.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Sindri - Árborg 1-2 Sindravellir, Hornafjörður ![]() Á laugardaginn héldu Hornfirðingar upp á sína árlegu Humarhátíð með pompi og pragt. Einn helsti liðurinn í dagskránni var leikur toppliðs Árborgar gegn heimamönnum í Sindra. Fyrir leikinn sat Árborg á toppnum með 16 stig á meðan heimamenn höfðu 13 stig og gátu þar að leiðandi komið sér upp að hlið Árborgarmanna með sigri.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - KFG 1-1 Selfossvöllur, 25.júní 2010 Á föstudagskvöld komu KFG-menn í heimsókn á Selfossvöll í einvígi toppliðanna í A-riðli. Það má segja að þar hafi mæst stálinn stinn en bæði lið hafa verið á blússandi siglingu að undanförnu og taplaus fyrir leikinn.
Lesa meira... |
Leikskýrsla KFR - Árborg 1-2 Hvolsvöllur, 21.júní 2010 Á mánudagskvöld mætti Árborg nágrönnunum sínum í Knattspyrnufélagi Rangæinga. Árborg hafði betur 2-1 í viðburðarríkum baráttuleik og endurheimti þar með toppsæti A-riðils á ný. Leikurinn var fimmti sigurleikur liðsins í jafnmörgum leikjum og Árborgarar eru nú einir á toppnum með 15 stig og tveggja stiga forskot á KFG sem koma í heimsókn á Selfossvöll á föstudagskvöld.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Markaregn 3-0 Selfossvöllur, 12.júní 2010 ![]() Árborg sigraði Markaregn með þremur mörkum gegn engu á laugardaginn og endurheimti toppsæti A-riðils. Leikurinn var fjórði sigurleikur Árborgar í röð og sá þriðji sem liðið heldur hreinu.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Björninn - Árborg 0-1 Gervigras við Egilshöll 9.júní 2010 ![]() Árborg sigraði Björninn frá Grafarvogi 1-0 á miðvikudagskvöld og endurheimti þar með toppsæti A-riðils eftir 3 umferðir. Staðan var 0-0 í hálfleik en Guðmundur Ármann skoraði sigurmarkið á 63 mínútu eftir sendingu frá Jóni Auðunni.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Álftanes 4-0 Selfossvöllur, 29.maí ![]() Árborg hélt sér í toppsætinu með góðum 4-0 sigri á Álftanesi á gervigrasinu á Selfossi. Álftanes, sem spáð var góðu gengi í ár eftir að hafa komist í úrslitakeppnina í fyrra, byrjaði leikinn ágætlega og leikurinn var í járnum fyrstu 15.mínúturnar.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Hvíti Riddarinn 8-1 Selfossvöllur, 24.maí ![]() Árborg sigraði Hvíta Riddarann frá Mosfellsbæ örugglega í fyrsta leik sínum í Íslandsmóti árið 2010. Árborg hafði yfirhöndina frá upphafi og það var Gummi Garðar sem skoraði fyrsta markið á 16. mínútu eftir sendingu frá Jóni Auðunni. Gummi Eggerts bætti öðru marki við þremur mínútum síðar eftir og var svo aftur að verki á 33. mínútu og nú eftir sendingu frá Gumma Garðari. Tveimur mínútum síðar skoraði Gummi Garðar sjálfur fjórða mark liðsins og sitt annað mark. Síðasta mark hálfleiksins skoraði svo Guðmundur Ármann á 38 mínútu og staðan því 5-0 í hálfleik.
Lesa meira... |
Leikskýrsla KFR - Árborg 5-3 Hvolsvöllur 8.maí 2010 ![]() KFR lagði Árborg 5-3 á Hvolsvelli í 1.umferð VISA bikarsins. Rangæingar byrjuðu með vindinn í bakið og nýttu sér það heldur betur og komust yfir í 3-0 í fyrri hálfleik. Stefán Orlandi skoraði fyrst úr vítaspyrnu, Hjörvar Sigurðsson skoraði annað markið og Brynjólfur Þorsteinsson það þriðja. Afar slök byrjun hjá Árborgurum en Dolli og Gummi Á náðu að minnka muninn fyrir Árborg í 3-2 og þannig var staðan í hálfleik.
Lesa meira... |
Upphitun KFR - Árborg Hvolsvöllur Árborg mætir KFR í fyrstu umferð VISA bikarsins laugardaginn 8.maí klukkan 14:00. Leikurinn fer fram á grasi á Hvolsvelli en aðeins eru rúmar tvær vikur frá því liðin mættust síðast í hörkuleik þar sem Árborg hafði betur 2-1. Það er því ljóst að það verður hart barist en sigurvegarinn mun mæta annað hvort Berserskjum eða KB í 2.umferð sem fram fer miðvikudaginn 19.maí.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Sindri - Árborg 0-1 Selfossvöllur, 02.maí 2010 ![]() Árborg sigraði Sindra í fjórða og síðasta leik sínum í C-deild Lengjubikarsins árið 2010. Dolli Sigurðarson skoraði eina mark leiksins með þrumuskoti beint úr aukaspyrnu af 25 metra færi á 70.mínútu leiksins. Árborg lauk keppni í 2. sæti í riðlinum (sjá lokastöðu) með 9 stig, einu stigi á eftir KFG sem fer í úrslitakeppnina. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - KFR 2-1 Selfossvöllur, 22.apríl 2010 klukkan 16:00 ![]() Árborg sigraði Knattspyrnufélag Rangæinga með tveimur mörkum gegn einu í þriðja leik sínum í C-deild Lengjubikars karla árið 2010. KFR-ingar komust yfir á 9. mínútu með marki frá Reyni Björgvinssyni þegar framherjinn potaði boltanum framhjá Steinari markverði, sem kom út úr teignum, og renndi boltanum í autt netið. Tíu mínútum síðar jafnaði Guðmundur Garðar með snyrtilegu skoti eftir stungusendingu frá Jóni Auðunni. Þrátt fyrir fjölmörg færi í fyrri hálfleik tókst Árborgurum ekki að bæta við marki og staðan því 1-1 í hálfleik.
Lesa meira... |
Upphitun Árborg - KFR Selfossvöllur, 22.apríl 2010 klukkan 16:00 Á sumardaginn fyrsta koma nágrannarnir í KFR í heimsókn í 3. leik Árborgar í Lengubikar. Liðin hafa mæst 6 sinnum í sögu félaganna og hefur Árborg haft undirtökin í viðureignum liðanna eins og sjá má hér. Leikurinn er sá fyrsti af fjórum leikjum á milli liðanna í sumar þ.s. liðin eru saman í riðli í lengjubikar og í íslandsmóti auk þess sem liðin voru dregin saman í fyrstu umferð VISA bikarsins. Athugið að um er að ræða breyttan leiktíma frá því sem var upphaflega auglýst á vef KSÍ. Lesa meira... |
Leikskýrsla KFG - Árborg 6-1 Stjörnuvöllur, 16.apríl 2010 klukkan 20:00 Það var fátt um fína drætti hjá leikmönnum Árborgar á hrollköldu föstudagskvöldi þegar liðið heimsótti KFG á Stjörnuvellinum í Garðabænum. Liðið byrjaði ágætlega og eftir 20 mínútur benti fátt til stórtaps en eftir fyrsta mark KFG opnuðust allar gáttir hjá varnarlínu Árborgar og frískir sóknarmenn KFG gengu á lagið og staðan var 4-0 í hálfleik. Árborgarmenn komu grimmir inn í seinni hálfleik en náðu ekki að ógna marki KFG nægjanlega oft og áður en yfir lauk höfðu KFG menn bætt við tveimur mörkum. Gummi Eggerts skoraði eina mark Árborgar eftir fyrirgjöf frá Gumma Garðari. Besti leikmaður Árborgar í leiknum var Jakob Björgvin. Byrjunarlið: Steinar (Sigmar 45), Plóli (Sigmundur 45), Jakob, Örvar (Baldur 20), Stefán Örn, Halli Jóh (Gummi Sig 65), Dolli, Eiki (Marinó 75), Árni Sigfús (Tommi 70), Gummi Egg, Gummi Garðar.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Augnablik 3-1 Selfossvöllur, 10.apríl 2010 klukkan 14:00 ![]() Á laugardaginn síðastliðin mættust Árborg og Augnablik í Lengjubikarnum. Byrjunarliðið var eftirfarandi (skýrsla af vef KSÍ) Markvörður: Steinar Hægri bakv.: Örvar Rafn Miðverðir: Óli Tryggvi, Jakob Seiðkarl Vinstri bakv.: Stefán Örn Varnartengiliður: Halli Jóh Miðjumenn: Jón Auðunn (Fyrirliði), Dolli Hægri kantur: Gummi Eggerts (GE) Vinstri kantur: Gummi Garðar (GG) Framherji: Gummi Á (GÁB) Varamenn: Sigmar, Páll Óli, Sigmundur, Marínó, Theódór og Tómas.
Lesa meira... |
Upphitun Árborg-Augnablik Selfossvöllur, 10.apríl 2010 klukkan 14:00 Leikurinn fer fram á gervigrasinu og hefst klukkan 14:00. Mikil spenna ríkir meðal leikmanna og menn munu selja dýrt enda á Árborg titil að verja í keppninni. Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta snemma (og í bláu) og hvetja sína menn. Lifi Árborg ! ekþ Lesa meira... |
Leikskýrslur Æfingar og æfingaleikir á einmánuði Eftir síðasta leik Árborgar í Sunnlenska bikarnum þá fannst Adólfi þjálfara þörf á því að herða mannskapinn aðeins og fékk því líkamsræktarfrömuðinn Heiðar Inga í lið með sér. Refsivöndurinn setti saman Cross-fit prógram, sem var byggt upp á samblandi af lyftingar-, líkams- og þolæfingum. Markmiðið var að undirbúa leikmenn fyrir áskoranir sumarsins, bæði líkamlegar sem og andlegar. Það hefur því verið þungt prógramið undanfarnar fjórar vikur en hugmyndin var svo að fá tilbrigði við Cross Fit æfingarnar með því að leika æfingaleiki inn á milli froskahoppa og hnébeygjuæfinga. Það gekk þó erfiðlega að fá æfingaleiki enda Lengjubikarinn byrjaður hjá flestum öðrum liðum. Leikjum við ÍH og Selfoss B var svo frestað af mismunandi ástæðum - ÍH afboðaði komu sína á Selfossvöll nokkrum klst fyrir leik og leiknum við Selfoss B var frestað vegna fimbulkulda og mikillar vindkælingar. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Hvöt 0-4 Kórinn, 7.mars Árborg mætti Hvöt frá Blönduósi í síðustu umferð Sunnlenska bikarsins sunnudaginn 7.mars sl.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Álftanes 2-1 Kórinn, 27.feb 2010 ![]() (Þessi leikskýrsla er í boði Nonna-bita). Árborg mætti Álftanes í 5.umferð Sunnlenska bikarsins laugardaginn 27.febrúar.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Afturelding 1- 5 Kórinn, 19.feb 2010 Árborg mætti Aftureldingu í 5.umferð Sunnlenska bikarsins í gærkvöldi.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Víðir 2-0 Kórinn, 6.febrúar 2010 Árborg mætti Víði frá Garði í 4.umferð Sunnlenska bikarsins laugardaginn 6.febrúar. Eitthvað örlítið bar á forföllum fyrir leikinn: Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Tindastóll 0-3 Kórinn, 31.jan 2010 Árborg mætti Tindastól frá Sauðárkróki í 3.umferð Sunnlenska bikarsins laugardaginn 31.janúar. Þjálfarinn hafði valið 20 manna hóp fyrir leikinn og byrjunarliðið var óbreytt frá leiknum gegn Hetti: Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Tindastóll Kórinn, 31.jan '10 Í dag klukkan 18:30 mætir Árborg Tindastól í 3.umferð Sunnlenska bikarsins. Leikmannahópur stækkar með hverjum leiknum og lítur svona út: Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Höttur Kórinn, 24.janúar 2010 Árborg mætti Hetti frá Egilsstöðum í 2.umferð Sunnlenska bikarsins á laugardaginn síðastliðinn. Þjálfarinn hafði valið 20 kappa í hóp fyrir leikinn og nú voru engin forföll. Byrjunarliðið var eftirfarandi:
Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Höttur Kórinn, 24.janúar 2010 Þá er komið að öðrum leik félagsins í Sunnlenska bikarnum. En á morgun mætir liðið 2.deildar liðinu Hetti frá Egilsstöðum. Athugið að leikurinn hefst klukkan 18:30 á morgun, Sunnudaginn 24.janúar, en ekki í kvöld eins og hann var auglýstur fyrr í vikunni. Leikurinn fer fram í Kórnum. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Reynir S Kórinn, 16.janúar 2010 Á laugardaginn sl. mættust Árborg og Reynir Sandgerði í Sunnlenska bikarnum. Nokkur forföll voru á hópnum fyrir leik en Böðvar, Kobbi og Guðjón Bjarni fengu leyfi og fyrirliðinn Jón Auðunn var með ælupest. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Reynir S Kórinn, 16.janúar 2010 Þá er loksins komið að því sem ALLIR hafa verið að bíða eftir! Fyrsti leikur Knattspyrnufélags Árborgar í Sunnlenska bikarnum (http://www.arborgfc.net/sunnlenska-bikarinn/) hefst á morgun, þegar liðið mætir Suðurnesjaliðinu Reyni frá Sandgerði. Athugið að leikurinn hefst klukkan 18:00 (en ekki 19:30) mun fara fram í Kórnum. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - KFR Kórinn, 6.des 2009. ![]() Á sunnudagskvöld sl. léku Árborgarmenn gegn drengjunum frá Rangárvöllum, KFR. Mikill galsi var í leikmönnum Árborgar fyrir leik enda komið vel fram yfir venjulegan svefntíma margra. Frábærar veðuraðstæður voru í Kórnum: 12°C og 0m/sek (vindmælir bilaður?)
Lesa meira... |
Upphitun Árborg - KFR Kórinn, 6.des ''09. Í kvöld leikur Árborg gegn KFR í öðrum æfingaleik liðsins á tímabilinu. Leikurinn hefst klukkan 22:00 og verður leikinn í Kórnum. Þjálfari og forráðamenn vilja nýta tækifærið og þakka foreldrum ungu drengjanna (aka kjúklinganna) fyrir það að framlengja útivistartíma þeirra vegna leiksins.
Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Selfoss 2.fl Selfossvöllur, 25.nóv 2009 Fyrsti æfingaleikur tímabilsins var leikinn á miðvikudagskvöld sl. á gervigrasinu á Selfossvelli. Leikurinn fór fram við ljómandi fínar aðstæður, 15 m/sec og 4 C°. Það voru nokkur forföll á leikmönnum en gríðarleg gleði var meðal þeirra leikmanna sem mættu, og þá sérstaklega í klefanum fyrir leik. Lesa meira... |
Ýmir-Árborg: Sannfærandi sigur á toppliðinu Það var napurt í lundinum fagra í gærkvöldi þegar Árborg heimsótti topplið Ýmis heim. Hér var spilað upp á heiðurinn en Ýmismenn voru búnir að tryggja sér efsta sætið í riðlinum fyrir nokkru. Árborgarar mættu vel stemmdir til leiks og hafði upphitun Hesta-Jóa greinilega frábær áhrif á léttleikandi lið þeirra bláu. Þrátt fyrir að Ýmismenn væru duglegir að halda knettinum og sparka á milli sín þá voru það Árborgarar sem sáu um hlutina sem skiptu máli - að skora mörk. Lesa meira... |
Upphitun Ýmir - Árborg Fagralundi í Kópavogi, fim. 20. ágúst kl. 19:00 Nú er komið að síðustu upphitun Hesta-Jóa þetta sumarið. Framundan er leikur við topplið Ýmis frá Kópavogi.Nánar hér: http://www.youtube.com/watch?v=PRzWDg5eGo8 Ástarkveðjur, Hesta-Jói Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Afríka Selfoss Stadione, 15.ágúst 09 Yndislegasta knattspyrnulið Íslandssögunnar, KF Árborg, tók á móti botnliði Afríku á laugardaginn 15.ágúst. Leikurinn reyndist hin mesta skemmtun enda leikmenn, dómarar og vallargestir í sólskinsskapi. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Afríka Selfossvöllur, laugardaginn 15.ágúst kl. 14:00 Þá er komið að síðasta heimaleik Árborgar í A riðli 3.deildar karla árið 2009.Í heimsókn á Selfoss Stadione koma hinir geðprúðu félagar í Knattspyrnufélaginu Afríka United frá Reykjavík. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Léttir Selfossvöllur 11.ágúst '09 Árborgarar tóku á móti strákunum í Létti á þriðjudaginn. Leikurinn einkenndist af léttleika og stuði en Letti kom ekki að horfa á leikinn. Til að gera stutta sögu langa verður farið yfir leikinn í grófum dráttum. Hesta Jói hitti ekki á rétt byrjunarlið í spá sinni fyrir leikinn. Steinar byrjaði í marki og vörnin var óbreytt frá því á Hoddnafirði með Einar og Gauja í bakvörðum og Jakob og Óla Tryggva í miðvörðum. Á miðjunni var Hafþór á kantinum og G. Garðar á hinum. Halli, GÁB og Dolli voru svo á miðjunni og Jón Auðunn á topp. Klassískt 4-5-1 með fljótandi köntum s.s. breytist í 4-3-3 þegar sótt er. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Léttir Selfossvöllur 11.ágúst kl. 20:00 Hesta-Jói var í andlegum undirbúningi fyrir sumar á Selfossi þegar hann fékk fréttir í gegnum veraldarvefinn af sigri sinna manna á Sindra. Það er óhætt að segja að gleðin hafi verið tær og falleg eins og kaldur bjór á heitum degi. Hugsanaflæði Hesta-Jóa fór á flug. Hann hringdi í spámiðilinn Láru, hún sagði að Ægir væri öruggur um annað sætið og til lítils væri að vinna fyrir galvaska drengi frá Árbakkanum. Dró það óneitanlega kraft úr Hesta-Jóa í nokkrar mínútur en svo var honum bent á það að þessi Lára væri nú ekki með fullefem og hefði haft rangt fyrir oft áður. Því brosir Hesta-Jói í kampinn í dag og er fullur tilhlökkunar (honum skilst að einhverjir leikmenn og viðstaddir hafi verið fullir af öðru en tilhlökkun á leiðinni heim í hérað á föstudaginn, en það verður látið liggja milli hluta). Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Ægir Selfossvöllur 29. júní Vallaraðstæður góðar.Veður: Skúrir en veður milt. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Ægir Selfossvöllur miðvikudaginn 29. júlí kl. 20:00 Hesta Jóa finnst eins og Árborg sé alltaf að spila við Ægi, hvernig stendur eiginlega á því? Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Ýmir Eyrarbakkavöllur miðvikudaginn 22. júlí Árborgarmenn tóku á móti Ými í blíðlyndisveðri á Eyrarbakka á miðvikdagskvöldið, leikurinn var spennandi og lauk með stórmeistarajafntefli en gefum Hesta Jóa orðið. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Ýmir Eyrarbakkavöllur miðvikudaginn 22. júlí kl. 20:00 Árborg tekur á móti toppliði Ýmis á fimmtudaginn á Árborgstadium. Öllum er sama um fyrri leiki enda þýðir ekki að fást um fortíðina heldur þarf að hugsa fram á við.Lesa meira... |
Leikskýrsla Afríka - Árborg Leiknisvelli fimmtudaginn 16. júlí Leikurinn fór frekar rólega af stað og liðin virtust lengi í gang. Lesa meira... |
Upphitun Afríka - Árborg Leiknisvelli, fimmtudaginn 16. júlí kl. 20:00 Litla liðið Afríka tekur á móti hinu rótgróna stórveldi KF Árborg í kvöld á gettóvellinum í Breiðholtinu og má þar búast við hörkuleik. Þessi lið hafa mæst nokkuð reglulega frá árinu 2003 en það var fyrsta árið sem litla liðið með stóra nafnið spilaði á Íslandsmótinu. Hafa okkar menn ætíð haft betur.Lesa meira... |
Leikskýrsla Léttir - Árborg ÍR-völlur, miðvikudaginn 8. júlí Léttir tók á móti Árborg á ÍR vellinum síðastliðið miðvikudagskvöld í blíðakaparveðri í neðanverðu Breiðholtinu. Hesta Jói var yfir sig hissa þegar hann var mættur á völlinn 5 mín fyrir leik þar sem Gummi Garðar var ekki mættur jafnvel þótt hann væri í byrjunarliðinu.Lesa meira... |
Upphitun Léttir - Árborg ÍR völlur, miðvikudaginn 8. júlí kl. 20:00 ![]() Hér er Léttir Um Létti Frá Létti Til Léttis Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Sindri Selfossvelli fimmtudaginn 2. júlí Árborgarar tóku á móti Sindramönnum á gervigrasvellinum á Selfossi fimmtudaginn 2. júlí og var flautað til leiks kl. 18:00 að staðartíma. Ljóst var fyrir leikinn að Árborgarmenn voru komnir með bakið nánast uppað vegg eftir slælega fyrstu umferð í A-riðli 3. deildar. Ekki þarf svo að minnast á frammistöðuna í fyrsta leik annarar umferðar í Þorlákshöfn þar sem ekki mátti finna feitan hest fyrir Árborgara til að ríða á og því var ferðin ein allsherjar niðurlæging.Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Sindri Selfossvöllur, kl. 18:00 2. júlí Næst skal leikið við Sindra frá Hornafirði, nánar tiltekið Höfn í Hornafirði. Hesta Jói (sem er margbreytilegur persónuleiki) man eftir skottúr þangað frá Selfossi fyrir nokkrum árum síðan, en með í för var Guðjón nokkur Hálfdánarson sem mun nú víst vera í fyrsta sinn í byrjunarliði hjá Árborgurum. Er honum óskað innilega til hamingju með það. En hverjum er ekki sama um þessa ágætu ferð, nú skal rætt og ritað um leikinn sem í hönd fer. Lesa meira... |
Leikskýrsla Ægir - Árborg Þorlákshafnarvöllur 25. júní Vallaraðstæður góðar.Veður: Milt en rigningarsuddi og þungbúið í þessum handakrika alheimsins. Lesa meira... |
Upphitun Ægir - Árborg Þorlákshafnarvöllur, 25. júní kl. 20:00 Árborgarmenn munu á fimmtudaginn fara næstum því alla leið til Vestmannaeyja, en þá munu þeir keppa í einni af stærri hraðahindrunum Íslands, Þolllákshöbbn. Lesa meira... |
Leikskýrsla Ýmir - Árborg Fagrilundur, 19.júní Það fór svo að veðurspáin rættist því það var sannarlega æðisgengið veður þegar knattspyrnudómarinn og skólastjórinn skeleggi Magnús Þór Jónsson flautaði á leik Ýmis og Árborgar á föstudagskvöld. Leikurinn, sem var afar viðburðarríkur, fór fram á grasvellinum í Fagralundi og endaði 5-4 fyrir heimamönnum. Liðunum var spáð efstu tveimur sætunum í A-riðli af þjálfurum og fyrirliðum 3.deildar liða og því ljóst að leikurinn yrði þýðingarmikill í toppbaráttu riðilsins. Byrjunarlið Árborgar var eftirfarandi: Markvörður: Steinar Örn - Bakverðir: Einar Ingi og Ólafur Tryggvi - Miðverðir: Jakob og Stefán Örn - Miðjumenn: Hallgrímur, Böðvar og Jón Auðunn - Kantmenn: Theódór og Guðmundur Garðar - Framherji: Guðmundur Ármann. Fyrir leik var Jakob heiðraður fyrir að leika sinn 100. leik fyrir félagið og var hann því fyrirliði liðsins í leiknum. Lesa meira... |
Upphitun Ýmir - Árborg Fagrilundur - 19.júní kl 20:00 Í dag, föstudaginn 19.júní, gera Árborgarar sér ferð í Kópavoginn til þess að leika við Ýmismenn. Leikurinn hefst klukkan 20:00 í Fagralundi. HK telfdi fram B-liði meistaraflokks karla undir merkjum ungmennafélagsins Drangs frá Vík í Mýrdal árin 2003 og 2004. Á árinu 2005 var svo ákveðið að leika undir merkjum Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi og hafa þeir leikið í 3.deildinni alla tíð síðan. En Ýmir er rekið alfarið undir knattspyrnudeild HK og er hreint varalið fyrir meistaraflokk félagsins. Með liðinu leika jafnan nokkrir úr meistarflokkshópi HK ásamt leikmanna úr 2.flokki en liðin eru með sameiginlega 2.flokk. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Afríka Selfossvöllur 12.júní 2009 kl. 20:00 Hver er Elías? eða hver er Zakaria Elías Anbari? Elías þessi er engin annar en framkvæmdastjóri liðsins með stóra drauma, stærri væntingar og stærsta nafnið. Elías þessi er einn af landnámsmönnum 20. aldarinnar. Hann kom frá Marokkó til Íslands árið 1988. Eftir eltingarleik við íslenska drauminn endaði ævintýri hans á kunnuglegum slóðum. Elías varð gjaldþrota í ársbyrjun 2003 og það löngu fyrir kreppu. Dökkir tímar auðga krafta hugmyndagyðjunnar en sama ár skráði Elías þessi lið Afríku til keppni í 3. deildinni. Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg-Léttir Selfossvöllur, 6.júní Það var undir brakandi hádegissólinni á sígrænum Selfossvelli sem dómarinn Óli Njáll Ingólfsson flautaði á leik Árborgar og Léttis á laugardaginn. Tæpir sjö tímar voru í landsleik Íslands-Hollands hinum megin við Heiðina og eftirvænting um góðan fótboltadag skein úr andlitum leikmanna og áhorfanda. Byrjunarlið Árborgar var eftirfarandi: Markvörður: Matus Mucha, bakverðir: Einar Ingi og Ólafur Tryggvi, miðverðir: Jakob og Stefán Örn, miðjumenn: Böðvar, Jón Auðunn (F) og Arnar Freyr, kantar: Guðmundur Garðar og Theódór, framherji: GÁB. Fyrir leik hafði GÁB verið heiðraður fyrir að leika sinn 100. leik fyrir félagið.Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Léttir Selfossvöllur, 6. júní kl. 12:00 Lesa meira... |
Leikskýrsla: Árborg - Víkingur Selfossvöllur 2. júní 2009 Enn eitt árið eru Árborgarar fallnir út úr bikarkeppninni, nú eftir ósigur gegn 1. deildarliði Víkings frá Reykjavík. Lokatölur urðu 0-2 og komu bæði mörk Víkinga í fyrri hálfleik. Árborgarar réðu hins vegar lögum og lofum í síðari hálfleik og voru klaufar að ná ekki að skora mark, sem hefði opnað leikinn upp á gátt. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Víkingur R. Selfossvöllur, 2. júní kl. 20:00 Árborg tekur á móti Víkingi frá Reykjavík í 2. umferð VISA-bikars karla á sígrænum Selfossvelli á þriðjudagskvöld. Leikurinn hefst kl. 20:00 og er aðgangseyrir 1000 krónur. Miðasala við innganginn. Lesa meira... |
Upphitun Sindri-Árborg Sindravellir, 30.maí kl 14:00 Lesa meira... |
Leikskýrsla KFG-Árborg Stjörnuvöllur, 24.maí Það blés ekki byrlega fyrir Árborgara í undirbúningi fyrir leik því miðjumennirnir knáu Böðvar og Jón Auðunn vöknuðu báðir upp veikir á sunnudagsmorgni og því ljóst að þeir yrðu ekki með. Siggi Tobba kom inn í hópinn af þeim sökum. Ekki bætti það úr skák þegar Ólafur Tryggvi stóðst ekki læknisskoðun fyrir leik vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir á síðustu æfingu fyrir leik.Lesa meira... |
Leikskýrsla Árborg - Ægir Selfossvöllur, 21. maí Byrjunarlið Árborgar; Steinar Örn, Einar Ingi, Jakob, Stefán Örn, Ólafur Tryggvi, Theódór, Guðmundur Garðar, Snorri, Böðvar, Jón Auðunn (f), Guðmundur Ármann.Varamenn: Halli, Marínó Geir, Hafþór, Matus, Arnar Freyr. Lesa meira... |
Upphitun KFG - Árborg Stjörnuvöllur, 24. maí kl. 16:00 Það er skammt stórra högga milli hjá Knattspyrnufélaginu því á morgun hefst fyrsta umferð íí VISA bikarkeppni KSÍ árið 2009 aðeins 3 dögum eftir fyrsta leik í íslandsmótinu. Hér er frábært tækifæri til þess að jafna sig eftir vonbrigðin yfir því að hafa ekki náð að landa öllum þremur stigum gegn þeim gulklæddu frá Þorlákshöfn. Það eru engin stig í boði á morgun - þar sem leikið er eftir útsláttarfyrirkomulagi í bikarkeppni eins og lög gera ráð fyrir. Lesa meira... |
Upphitun Árborg - Ægir Selfossvöllur, 21. maí kl. 14:00 Fyrsta leik í 3.deild A riðli hjá Knattspyrnufélagi Árborgar er beðið með mikilli eftirvæntingu, þá fáum við erkifjendur og nágranna úr Ægi frá Þorlákshöfn í heimsókn. Liðin hafa marga hildi háð í gegnum tíðina og eiga á milli sín 16 leiki í mótum KSÍ. Þar af hefur Árborg sigrað 8 leiki, 4x hefur farið jafnt og hefur Ægir sigrað 4 leiki.
Lesa meira... |












































