Category Archives: Fréttir

Árborg – Víðir í kvöld

Boltinn byrjar að rúlla þetta sumarið með bikarleik Árborgar og Víðis á gervigrasvellinum á Selfossi í kvöld, þriðjudagskvöld kl. 19.

Posted in Fréttir | Leave a comment

Sæli og Pálmi í Árborg (Staðfest)

Knattspyrnufélag Árborgar hefur fengið Ægis-goðsögnina Ársæl Jónsson til liðs við sig og mun hann leika með liðinu í 3. deildinni í sumar. Þá hefur annar Ægismaður, hinn efnilegi Pálmi Þór Ásbergsson verið lánaður til liðsins frá Selfossi.

Posted in Fréttir | Leave a comment

Árborg – Álftanes 2-3 (2-2)

Árborgarar spiluðu sinn síðasta æfingarleik fyrir mót á Eyrarbakkateppinu í gærkvöldi. Leikurinn fer seint í sögubækurnar fyrir fegurð eða flæði en var góður leikur til að taka út pirring og ergelsi í. Álftanes sigraði 2-3.

Posted in Fréttir | 1 Comment

Harti slær í gegn

Hartmann er kominn í hóp ríka og fræga fólksins en mynd af honum birtist á FlickMyLife í gær.

Posted in Fréttir | Leave a comment

Þjálfararnir opna sig á fotbolti.net

Guðmundur Garðar og Guðjón Bjarni eru í viðtali á fotbolti.net í dag þar sem þeir lýsa stemmningunni hjá Árborgarliðinu.

Posted in Fréttir | Leave a comment

Æfingaleikur í kvöld

Árborg leikur sinn síðasta æfingaleik áður en alvara sumarsins hefst í kvöld, miðvikudagskvöld kl. 19 á Eyrarbakkavelli. Mótherjinn er Álftanes.

Posted in Fréttir | Leave a comment

Árborg – Hamar 3-2 (0-1)

Árborg atti kappi við Andy Pew og félaga í 2. deildarliði Hamars í bongóblíðu á Eyrarbakkavelli í dag. Lokatölur voru 3-2 eftir að Hamar hafði leitt, 0-1 í hálfleik.

Posted in Fréttir | 1 Comment

Æfingaleikur á morgun

Árborg og Hamars mætast í æfingaleik á Eyrarbakkavelli á morgun, sunnudag kl. 17.

Posted in Fréttir | 1 Comment

Árborg – Stokkseyri 5-2 (2-0)

Árborg tók á móti Stokkseyri í blíðskaparveðri á Eyrarbakka í hádeginu í dag. Árborg hafði töglin og hagldirnar allan tímann og sigraði örugglega, 5-2.

Posted in Fréttir | Leave a comment

Æfingaleikur á laugardag

Hádegisleikurinn á morgun í íslenska boltanum er æfingaleikur Árborgar og Stokkseyrar á Eyrarbakkavelli.

Posted in Fréttir | Leave a comment