Fréttir og tilkynningar
Bjarnarleik frestað
Árborgarmenn hafa gert Birninum Bjarnagreiða með því að samþykkja frestun á leik liðanna sem fram átti að fara í kvöld, föstudaginn 4. júní.

Adólf fær UEFA B gráðu
Knattspyrnufélag Árborgar óskar þjálfaranum til hamingju með áfangann enda frábært fyrir félagið að vera með á sínum snærum þjálfara með UEFA B þjálfara gráðu.

Nánar um frétt



Upphitun

Árborg - Tindastóll
Kórinn, 31.jan '10

Í dag klukkan 18:30 mætir Árborg Tindastól í 3.umferð Sunnlenska bikarsins.
Leikmannahópur stækkar með hverjum leiknum og lítur svona út:

Markvörður: Steinar
Varnarmenn: Óli Tryggvi, Jakob, Guðjón Bjarni, Örvar, Guðbergur, Marínó, Gummi Geir, Árni Sigfús
Miðjumenn: Hallgrímur Jóh, Jón Auðunn,  Dolli, Böðvar, Stefán Örn, Plóli
Framherjar/Kantmenn: Hafþór, Tommi Kjartans, Gummi Garðar, Einar Ingi, Gummi Eggerts, Arnar Freyr  

Varnartröllið Jakob Björgvin Jakobsson hefur verið að kynna sér andstæðinganna og hafði eftirfarandi um þá að segja: 

"Hef heyrt að Tindastóll sé í óða önn að bæta sig fyrir sumarið 2010. Þeir eru með marga menn sem eru að reyna að sanna sig í nýjum stöðum og aðra sem eru með blóð á tönnunum til að sanna sig fyrir þjálfaranum. Þeir hafa misst örfáa leikmenn, en fengið ferskan andblæ inn. Þeir mæta því ákveðnir sem aldrei fyrr til leiks í dag.
Eina sem Árborg þarf að huga að er að láta hjartað slá á réttum forsendum, þá er sigurinn vís."

Áfram Árborg


Prenta frétt Senda frétt Deila á TwitterDeila á Twitter Deila á Facebook

Til baka

 

Knattspyrnufélag Árborgar - www.arborgfc.net - arborgfc@arborgfc.net