Upphitun: Árborg – Afturelding

Árborg tekur á móti Aftureldingu frá Mosfellsbæ á Selfossvelli, laugardaginn 9. júlí kl. 14:00.

Árborg og Afturelding hafa einu sinni  mæst áður, það var í deildarbikarnum í vor þar sem Mosfellingar unnu 2-0 sigur. Tengingin á milli klúbbanna er lítil. Tveir leikmenn hafa spilað fyrir bæði lið. Gunni Borgþórs var í sjö ár í Mosfellsbænum og á yfir hundrað leiki fyrir félagið. Þá var Steini markmaður í herbúðum Aftureldingar 2001 og 2002 og lék svo í þrjú ár með Hvíta riddaranum. Jói III, sem lék með okkur vorið 2006, er uppalinn í Aftureldingu. Einn Sunnlendingur er í liði Aftureldingar, Snorri Helgason Jóhannessonar frá Hvammi 2 í Hrunamannahreppi. Afi hans er toppnáungi – og sjálfsagt Snorri líka.

Gengi liðanna í 2. deildinni í sumar hefur verið töluvert ólíkt. Reyndar er gengi flestra liða ólíkt gengi okkar. Taplausir í síðustu fimm leikjum hafa Mosfellingar lyft sér upp í 5. sæti deildarinnar með 17 stig og eru nú skammt frá toppnum. Árborg er hins vegar á botninum með 5 stig. Markahæsti leikmaður þeirra, Arnór Þrastarson, hefur skorað fjögur mörk.

Úrslit liðanna í síðustu fimm leikjum í deildinni:
Árborg: J-T-T-J-T
Afturelding: S-S-J-S-S

Flautað verður til leiks kl. 14:00 en maðurinn með flautuna er KR-ingurinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson. Honum til aðstoðar eru Eyjapeyjinn og fréttahaukurinn Júlíus Ingason og Þorlákshafnar-Þórsarinn Magnús Garðarsson. Varadómari er Guðmundur Ársæll Guðmundsson, sem dæmir fyrir Huginn á Seyðisfirði.

Veðrið á leikdag verður í boði Bónus, svokölluð bongóblíða, en gert er ráð fyrir glaðasólskini, hægri norðaustan átt og 16 stiga hita.

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.

Skilja eftir athugasemd

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <font color="" face="" size=""> <span style="">